Skip to product information
Cabarello, Hondúras,
2.800 kr
Taxes included.
Marysabel Caballero & Moises Herrera – Honduras
Þetta er Catuai yrki sem fær lengri gerjun („extended fermentation“) og öðlast þannig aukna dýpt, sætu og spennandi ávaxta og súkkulaðitóna
Marysabel Caballero og Moises Herrera eru margverðlaunaðir kaffibændur frá Marcala í Hondúras og tilheyra annarri og þriðju kynslóð kaffiræktenda. Saman reka þau 17 kaffibýli á tæplega 200 hekturum, þar sem Catuai er í aðalhlutverki ásamt spennandi afbrigðum á borð við Java, Pacamara og Geisha.
Gæði og sjálfbærni eru rauði þráðurinn í öllu sem þau gera. Þau vinna markvisst að því að bæta jarðveginn, auka líffræðilega fjölbreytni og þróa ræktunina ár frá ári.
Afraksturinn er einstaklega vandað kaffi með mikinn karakter – ræktað af fólki sem leggur metnað, þekkingu og ástríðu í hvern einasta bolla.