Skip to product information
AA Thiririka, Kenýa
3.500 kr
Taxes included.
Thiririka – klassískt kaffi frá Kenýa
Þetta kaffi er afrakstur vinnu hundruða smábænda sem tilheyra Thiririka-bændasamvinnufélaginu í Kenýa.
Kaffiberin eru vandlega flokkuð áður en þau fara í vinnslu. Kaffið er síðan þurrgerjað, þvegið og flokkað í vatnsrennum áður en það er látið þorna hægt á upphækkuðum þurrkbeðum.
Vönduð og nákvæm vinnsla sem skilar hreinum og fáguðum karakter í bollann.
Yrki: SL-34, Batian, SL-28, Ruiru 11
Vinnsla: Þvegið
Uppskeruár: 2026
Cupping score: 87.5
Bragðlýsíng : Silkimjúkt og sælgætiskennt með kirsuberjum og sólberjum. Safaríkur berjagos-karakter með apríkósu, rauðum berjum og karamellu. Lífleg sýra, mikil sæta og langt, mjúkt eftirbragð.