Skip to product information
1 of 12
Brennslustíll
magn

Korg

Noruega, El Salvador

Noruega, El Salvador

Regular price 3.300 kr
Regular price Sale price 3.300 kr
Sale Sold out
Taxes included.

Uppskeru ár : 2024

Ræktunarhæð yfir sjávarmál :1450-1690m

Bragðtónar : Mango, skógarber, vanilla, kiwi, blóðappelsína og jarðarber.

Vinnsluaðferð : Natural / Berþurrkað

Fyrst eru kaffiberin sett í vatn, þá er hægt að aðskilja þau ber frá sem eru of eða vanþroskuð til að auka gæði uppskerunnar.

Þá eru berin sett í stáltanka, en eru flutt í þeim yfir á stéttar þar sem kaffið fær að þorna. Stanslaust er hreyft við berjunum til að komast hjá skemmdum og til að þurrkferlið sé jafnt. Þetta kallast Pre - drying en fyrsta þurrkun, makmiðið er að ná sem mestum raka úr baununum til að stoppa gerjun. Þetta ferli tekur um 3-5 daga, en það ræðst af hita og sólskini. 

Þurrkun

Kaffinu er safnað af stéttunum í plastsekki og vigtað, og fært yfir í næsta skref þurrkunar á "African beds". Það eru upphækkaðir bekkir sem gefa betri loftun um baunirnar í þurrkunarferlinu. Nourega er með tveggja hæða Afríska bekki. Kaffið er fyrst sett á neðri hæð bekkjanna og er þurrkað niður í 20% raka á 3-5 dögum. Þá er kaffið fært yfir á efri hluta bekkjanna þar sem kaffið klárar þurrkferlið á 8-10 dögum, þar til að það kemst í 10% raka. Við það rakastig er óhætt að geyma og flytja kaffið án þess að það verði fyrir rakaskemmdum.

Kaffið er þá sett í GrainPro poka (sterka plastpoka) til að verja kaffið og halda því í réttu rakastigi.

Yrki : Pacamara. Þetta kaffiyrki kemur af lágum kaffitrjám sem gefa af sér mjög stór ber, þess vegna eru þetta undarlega stórar kaffibaunir. Yrkið þykir gefa mjög braðgóðar kaffibaunir sérstaklega sé það ræktað í mikilli hæð yfir sjávarmáli eins og í þessu tilfelli Yrkið er þó viðkvæmt fyrir pestum og sjúkdómum sem herja á kaffiplöntur. 



View full details