Korg
Finca Flor Del Rosario, Guatemala
Finca Flor Del Rosario, Guatemala
Couldn't load pickup availability
Finca Flor del Rosario er stakur kaffibúgaður í eigu Don Horst.
Ræktunarhæð yfir sjávarmáli : 1.200 – 1.500 masl.
Bragðtónar : Dökkt súkkulaði, rauðber og karamella
Vinnsluaðferð : Þvegið
Don Horst fór víða um Mið- og Suður-Ameríku og lenti fyrst í Costa Rica , svo í Mexíkó, áður en hann settist loks að í Gvatemala árið 1961.
Hann byrjaði að rækta kaffi á búinu árið 1988 og hefur kaffið hans þegar náð að verða eitt það besta sem Gvatemala hefur upp á að bjóða. Árið 2002 lenti kaffið í 6. sæti á netuppboði (the Guatemalan Coffee Internet Auction) og var það eina kaffið frá Alta Verapaz-svæðinu sem komst til keppni.
Búið er ekki bara kaffi — þar er líka gífurleg náttúrufegurð. Gróður og dýralíf eru svo fjölbreytt að staðurinn líður næstum eins og náttúrulegt furðuland. Þegar maður gengur inn á þau 550 hektara sem búið nær yfir, rekst maður á alla kyns blóm — orkideur og kardimommur og Monja Blanca, sem er þjóðblóm Gvatemala.
Enn dýpra inni á svæðinu er töfrandi 100 metra náttúrulegur foss sem við höfum valið sem innblástur fyrir vörumerkið okkar „La Cascada" — eða „fossinn" á íslensku.
Rétt hjá fossinum eru smáir hellar í klettum, myndaðir fyrir milljónir ára.
Kaffið hans Horst er alveg eins sérstakt og búið sjálft. Þetta er kaffi frá svæði sem er þekkt fyrir frúmskóga, ríka sögu frumbyggja og ljúffengt kaffi. Don Horst hefur lagt hjarta sitt í þessa ræktun síðan 1988 og kaffið hans er líklega það sýrasta og skarpasta á svæðinu. Þetta er ávaxtaríkt kaffi, ásamt mjúkri og góðri fyllingu, gerir þetta kaffi að eitthvað sem maður gleymir ekki.
Share
